já, börn, þau eru yndisleg en einnig geta þau reynt á öll þolrifin hjá manni.... Og svo eru gullkornin sem koma hjá þeim alveg hrein snilld. Dóttir mín segir iðulega að hún sé "búin að ganga frá sér" þegar hún meinar að sjálsögðu að hún sé búin að ganga frá eftir sig

Svo er einn 6 ára sem er algjör snillingur í að láta í ljós sínar skoðanir á því hvernig lífið gengur fyrir sig

Hans skoðun á því hvernig fólk þroskast. En sú skoðun er eftirfarandi: "Sko fyrst verður maður 1 árs ,svo 2, 3, 4,5,,6,7,8,9,10,11,12,13,14,15,16,17,18,19,2o og svo verður maður
feitur og fullorðinn!!!!

þá vitum við það! allir þeir sem eru yfir tvítugu, þið eruð semsagt feitir og fullorðnir.... En svo eru náttúrulega til einstaklingar sem brjóta regluna en ég tel mig einmitt vera þannig einstakling

Eis og ég segi ,algjörir snillingar þessi börn :-)